top of page
Search

Varða hlýtur styrk úr Jafnréttissjóði

  • Writer: Varða rannsóknastofnun vinnumarkaðarins
    Varða rannsóknastofnun vinnumarkaðarins
  • Jun 21, 2021
  • 1 min read

Updated: Jun 28, 2021


F.v. Margrét Einarsdóttir, Kolbeinn H. Stefánsson, Sonja Ýr Þorbergsdóttir, Kristín Heba Gísladóttir, Drífa Snædal og Adda Guðrún Gylfadóttir
Á myndinni eru frá vinstri: Margrét Einarsdóttir, Kolbeinn H. Stefánsson, Sonja Ýr Þorbergsdóttir, Kristín Heba Gísladóttir, Drífa Snædal og Adda Guðrún Gylfadóttir

Varða – rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins hefur hlotið styrk úr Jafnréttissjóði til að framkvæma rannsókn á upplifunum og reynslu ungra kvenna á aldrinum 16-24 ára af erlendum uppruna sem eru hvorki í námi né atvinnu.


Um er að ræða rannsóknarverkefni sem tengist megindlegri rannsókn Vörðu um stöðu ungmenna af erlendum uppruna sem standa utan vinnumarkaðar og náms sem hefur hlotið styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála. Fyrirliggjandi gögn benda til þess að ungar konur af erlendum uppruna séu líklegri til að stunda hvorki atvinnu né nám en aðrir félagshópar í íslensku samfélagi og því mikilvægt að skoða stöðu þeirra og upplifun nánar. Rannsóknin byggir á frásögnum um upplifanir ungra kvenna af erlendum uppruna í rýnihóp.


Megin markmiðið er að varpa ljósi á aðstæður og reynslu viðmælenda og ná fram upplýsingum um hvaða leiðir þær telja vera til staðar til að auka virkni og þátttöku á vinnumarkaði eða auknum stuðningi til náms.


Úthlutun úr Jafnréttissjóði Íslands fór fram við hátíðlega athöfn í Hörpu þann 18. júní 2021.

 
 
 

1 Comment


Rakesh Kumar
Rakesh Kumar
Apr 09

I downloaded this game just to try something new and see how it works. At first it was confusing and I didn’t enjoy much. But after few rounds, it became easy. Now I play it sometimes when I’m free. It runs smoothly without lag. No issues till now. I don’t play regularly. It’s not a big or advanced game but still okay for passing time when you don’t want anything too heavy.

Bharat Club

Like

©2026 Varða - rannsóknastofnun vinnumarkaðarins.

bottom of page