top of page
Search
  • Writer's pictureVarða rannsóknastofnun vinnumarkaðarins

Varða hlýtur styrk úr Vísindasjóði Orkuveitu Reykjavíkur

Varða – rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins hefur hlotið styrk úr Vísindasjóði Orkuveitu Reykjavíkur, VOR til að framkvæma rannsókn á stöðu foreldra á Íslandi með tilliti til möguleika þeirra til að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf út frá skipulagi vinnu og skólastarfs. Verkefnið hlaut 8,5 milljóna króna styrk en það ber heitið Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs barnafjölskyldna á Íslandi: Byrði umönnunartímabils frá 12 mánaða til 12 ára.


Rannsóknir sýna að tækifæri fólks til að samræma atvinnu- og einkalíf hefur víðtæk áhrif meðal annars á líkamlega- og andlega heilsu, ánægju og starfsafköst. Þrátt fyrir að litið sé til Íslands sem fyrirmyndar í jafnréttismálum þá er launamunur kynjanna staðreynd, konur vinna í mun meira mæli hlutastörf og þær bera enn megin þungan af heimili og umönnun barna. Erlendar rannsóknir sýna jafnframt að konur bera í meira mæli ábyrgð á umönnun barna vegna veikinda og skólafría. Í þeim löndum þar sem stefnumótun stjórnvalda miðar að því að vera fjölskylduvæn og stuðla að réttindum kvenna, dregur saman með konum og körlum hvað varðar þann tíma sem þau eyða í ólaunuð störf á heimilinu líkt og umönnun barna. Jafnframt hefur verið sýnt fram á að hækkun launa í hefðbundnum kvennastörfum jafnar ábyrgð þeirra kvenna og maka þeirra.


Í ljósi fyrri rannsókna er markmið þessa verkefnis að nálgast kynjajafnrétti á vinnumarkaði út frá umönnunarbyrði barna með því að skoða með heildrænum hætti hvort uppbygging innviða samfélagsins þegar litið er til skólakerfisins samræmist réttindum foreldra til orlofs og veikindaréttar vegna barna.


Úthlutun úr Vísindasjóði Orkuveitu Reykjavíkur fór fram við hátíðlega athöfn í húskynnum OR þann 6. október 2022. Nánari upplýsingar um þau verkefni sem hlutu styrk má finna á heimasíðu OR


104 views0 comments
bottom of page