top of page
Search
  • Writer's pictureVarða rannsóknastofnun vinnumarkaðarins

Vinnumansal á Íslandi



Nýlega kom út stutt fræðslumyndband á fimm tungumálum um helstu einkenni vinnumansals. Verkefnið var unnið á síðasta ári, í ljósi þess að slík mál gera í auknum mæli vart við sig í íslensku samfélagi og ástæða þótti til þess að gera betur grein fyrir þeim. Myndin er um þriggja mínútna löng hreyfimynd og er unnin á Íslandi, en myndskreytirinn Elías Rúni teinaði myndirnar við handrit sem unnið var af samstarfshópi þeirra sem komu að verkinu.



Myndbandið er samstarfsverkefni Vörðu - Rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins, Félagsmálaskóla alþýðu, Jafnréttisstofu, Kvennaathvarfs, Vinnueftirlitsins, Rauða Krossins á Íslandi og Neyðarlínu - 112. Verkefnið hlaut styrk frá Dómsmálaráðuneyti og Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti.

25 views0 comments
bottom of page